top of page
Image by Kathy Servian

"Bestu hlutirnir í lífinu eru handan við óttann"

Um mig

Ég elska fjölbreytileika mannlífsins. Það að hjàlpa fólki að verða besta útgáfan af sjálfu sér gefur mér svo mikið og hjálpar mér að vaxa sem manneskja um leið. Eftir að hafa farið í gegnum þerapíuna; Lærðu að elska þig, hafa opnast svo margar nýjar leiðir í lífi mínu. Ferðalagið er rétt að byrja og ég, með kærleika og frið í hjarta, blómstra sem aldrei fyrr. Fyrir mér er þetta ekki bara þerapía heldur nýr lífsstíll. Mig langar að breiða út boðskapinn til allra sem vilja meira af kærleika og frið í lífið. Í grunninn er ég lærður þroskaþjálfi og snyrtifræðingur, allt sem ég hef lært og hef reynslu af gerir mig að þeirri manneskju sem ég er í dag, ég sit miklu betur í sjálfri mér núna heldur en ég hef áður gert. Ég hef glímt við kvíða síðan ég man eftir mér, geðhvörf hafa líka komið við sögu svo og þunglyndi, vefjagigt ofl. Í dag heyra allir þessir kvillar sögunni til. Lífið er svo miklu auðveldara og skemmtilegra núna þegar ég hef lært að vera bara til á mín forsendum.

"Ég vil vinna við að aðstoða fólk við að læra að elska sig áreynslulaust, og auka anda minn um leið. Mantran mín er að hamingjan er að gera það besta úr því sem lífið hefur upp á að bjóða."

IMG_6027.PNG

Í daglegu lífi trúi ég að allt fari eins og það eigi að fara og allt sé eins og það eigi að vera. Lífið býður okkur upp á verkefni en ekki vandamál og ef við kjósum að vinna verkefnin og takast á við þau þroskar það okkur sem sálir og við getum haldið áfram á þroskabrautinni. Ég hef tekist á við hin ýmsu verkefni í lífinu hingað til m.a. Ástvinamissi, alkahólisma, höfnun, sambandsslit, skurðaðgerðir, geðveiki, lágt sjálfsmat, ofsakvíða svo eitthvað sé nefnt. Ég elska að skrifa, skipuleggja og eiga samtal við náungann, èg tileinka mér hluti mjög áreynslulaust og finnst frábært að læra eitthvað nýtt. Ég er kærleiksrík og traust manneskja, er góð vinkona, maki, mamma og amma. Ég vil láta gott af mér leiða. Ég er vinur vina minna og kýs að eyða ekki tíma mínum í froðusnakk um náungann, það veitir mér enga gleði. Ég vil frekar dýpri samræður um lífið og okkur sjálf. Ég er svo þakklát fyrir að fá að draga andann, vakna á hverjum morgni og takast á við lífsverkefnin. Ég hlakka til að takast við þau verkefni sem lífið mun færa mér.

Kær kveðja

bottom of page