
Um mig
Ég elska fjölbreytileika mannlífsins. Eftir að hafa farið í gegnum þerapíuna; Lærðu að elska þig, hafa opnast svo margar nýjar leiðir í lífi mínu. Mig langar að breiða út boðskapinn til allra sem vilja meira af kærleika og frið í lífið. Allt sem ég hef lært og hef reynslu af gerir mig að þeirri manneskju sem ég er í dag. Ég hef fengið minn skerf af hinum ýmsum kvillum í gegnum tíðina en í dag eru þeir horfnir. Lífið er svo miklu auðveldara og skemmtilegra núna þegar ég hef lært að vera bara til á mín forsendum. Lífið býður okkur upp á verkefni en ekki vandamál og ef við kjósum að vinna verkefnin og takast á við þau þroskar það okkur sem sálir og við getum haldið áfram á þroskabrautinni. Ég hef tekist á við hin ýmsu verkefni í lífinu hingað til. Ég vil láta gott af mér leiða. Ég er vinur vina minna og kýs að eyða ekki tíma mínum í froðusnakk um náungann, það veitir mér enga gleði.


Þerapían - Lærðu að elska þig
Þerapían „Lærðu að elska þig“ er einstaklingsmiðuð þjálfun/námskeið og uppbygging fyrir einstaklinga sem vilja lifa stórkostlegu lífi.
Um er að ræða samtalsmeðferð sem er blanda af fróðleik, æfingum og verkefnum þar sem meðal annars eru kenndar aðferðir sem stuðla að jákvæðara hugarfari og sjálfsmati, aukinni meðvitund, sjálfsöryggi og hugrekki, betri tengingu við sjálfa/n þig og innsæið.
Þerapían er örugg og áhugaverð leið til að skapa betra líf og líðan.
